Electro Salts Powder frá NAF er fóðurbætir í duftformi sem ætlaður er til að bæta upp vökvatap og tap á mikilvægum söltum hjá hrossum. Hross stýra líkamshita sínum með því að svitna. Þegar hross í þjálfun svitna tapa þau bæði vökva og nauðsynlegum söltum (electrolytes), þá sérstaklega natríum, kalsíum, kalium og magnesium. Því meiri sem þjálfunin er því líklegra er að þau tapi þessum söltum og nái ekki að bæta þau upp með daglegri fæðu eins og heyi og kraftfóðri. Það getur orsakað þreytu, minnkaða frammistöðu og í alvarlegum tilvikum valdið skemmdum á vöðvum, beinum og brjóski. Electro Salts fóðurbætirinn inniheldur hátt magn af þeim söltum (electrolytes) sem eru nauðsynleg fyrir hestinn. Electro Salts hentar því einstaklega vel fyrir hross í mjög mikilli þjálfun. Electro Salts er gefið í vel bleyttu fóðri eða því blandað í vatn. Mikilvægt er að hrossin hafi ávallt greiðan aðgang að fersku vatni við gjöf Electro Salts.
Gefist hrossum til að bæta upp fyrir tap á söltum eftir erfiðis þjálfun og/eða vinnu í heitum veðrum og/eða eftir að hestur svitnar mikið.
Fyrir keppni (gefið 1-3 daga) - gefið 40gr (4 skömmtunarskeiðar) 1x á dag yfir fóður.
Viðhaldsskammtur (gefið að staðaldri) - gefið 20gr (2 skömmtunarskeiðar) 1x á dag yfir fóður.
Frekari upplýsingar um vöruna >
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives