EnerG Liquid frá NAF er fóðurbætir á vökvaformi ríkur af vítamínum og snefilefnum. Fóðurbætirinn er hannaður til að styrkja við hross í mikilli þjálfun. Því meiri þjálfun sem að hross eru í, því meiri er þörf næringarefna, til að mynda tapast sölt hratt með svita. EnerG Liquid inniheldur járn, kopar, sink, auk þess að vera ríkt af B vitamíni og K vítamíni. B vítamín komplexar stuðla að myndun og heilbrigði rauðra blóðkorna auk þess að vera mikilvægir fyrir efnaskipti líkamans, svo fátt eitt sé nefnt. EnerG Liquid inniheldur einnig K vítamín sem er mikilvægt fyrir storknun blóðs og beinefnaskipti.
Gefið hrossum EnerG Liquid til viðhalds og til hrossa í mikilli þjálfun. Einnig er hægt að gefa EnerG sem orksuskot með EnerG shot þegar hámarksafkasta er óskað. Einnig tilvalið fyrir hross með lélega matarlyst.
Byrjunar "hleðslu" skammtur (gefið í 3-5 daga) = 45ml (eða 3 x 15ml matskeiðar) 1x á dag yfir fóður.
Viðhaldsskammtur (að staðaldri) = 30ml (eða 2 x 15ml matskeiðar) 1x á dag yfir fóður.
Frekari upplýsingar um vöruna >
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives