"Við höfum verið í viðskiptum við Dýralæknana Katrinu og Helgu frá stofnun stofunnar. Allt okkar samstarf hefur verið hnökralaust. Þær búa yfir mikilli fagmennsku, hafa góða verkkunnáttu og halda vel utan um öll þau verkefni sem við leggjum í hendur þeirra. Við erum sérstaklega ánægð með eftirfylgni þeirra og áhuga á velferð dýranna."

- Daníel Pálsson og Ragnhildur Sævarsdóttir, kúabændur á Hjálmsstöðum í Bláskógabyggð.

Um okkur

Við erum dýralæknarnir Katrin og Helga Björt, eigendur fyrirtækisins Dýralæknar Katrin og Helga ehf. Við höfum unnið sem praktíserandi dýralæknar í blönduðum praksis síðan 2019 en fyrirtækið okkar stofnuðum við árið 2022. Síðan þá höfum við unnið hörðum höndum að því að byggja upp fyrirtækið og leggjum áherslu á persónulega og faglega dýralæknaþjónustu.

Við störfum á Suðurlandinu og bjóðum alhliða dýralækningar fyrir hross, kýr, sauðfé og smádýr, og sinnum vitjunum í hesthús, fjós, fjárhús og heimahús. Starfsemin er því fjölbreytt en má þar nefna almennar vitjanir og neyðarþjónustu fyrir stór sem smá dýr, söluskoðanir og tannraspanir á hrossum, fang- og fylskoðanir, hnykkingar og fleira.

Kannaðu vefsíðu okkar frekar til að fræðast betur um þá þjónustu sem við bjóðum upp á.

Þjónustan okkar >

Sæðingar - Frysting

Dýralæknar Katrin og Helga ehf. hafa sinnt sæðistöku á stóðhestum og sæðingum á hryssum síðan vorið 2023 með góðum árangri. Við höfum sætt hryssur með fersku og kældu sæði ásamt því að senda kælt sæði á aðrar sæðingastöðvar.

Þjónusta okkar á sæðistöku, mati á sæðisgæðum og/eða sæðingum hryssa er í boði hverjum þeim sem hafa samband og óska eftir þeirri þjónustu hjá sér.

Árið 2024 byrjuðu Dýralæknar Katrin og Helga ehf. samvinnuverkefni með Guðmundi Jóni Viðarssyni í Skálakoti um frystingu hestasæðis til notkunar bæði hér á landi og erlendis. Árið 2024 sæddum við fimm hryssur með frystu sæði og er von á fjórum "frystum" folöldum vorið 2025. Þetta er spennandi verkefni og má segja frumkvöðlastarf, því aldrei hefur sæði úr íslenskum stóðhesti staðsettum á Íslandi verið flutt úr landi. Um þessar mundir er í byggingu sæðingastöð að Efri-Holtum þar sem Dýralæknar Katrin og Helga ehf. munu sjá um fjölþætta þjónustu við sæðistöku, frystingu og geymslu sæðis.

Meira >

Við erum hér fyrir dýrið þitt

Nýtt á Íslandi

NAF – Fyrir hestinn þinn

NAF (Natural Animal Feeds) er eitt virtasta vörumerkið í framleiðslu á fæðubótarefnum fyrir hross í Bretlandi. Fyrirtækið hefur áratuga reynslu af þróun hágæða fæðubótarefna sem stuðla að betri heilsu og vellíðan hrossa, jafnt fyrir keppnishesta, reiðhesta, vinnuhross eða gæludýr.

NAF notar einungis bestu náttúrulegu hráefni sem völ er á, sem sett eru saman í einstakar formúlur af sérfræðiteymi NAF sem samanstendur af dýralæknum og næringarfræðingum.

Það gleður okkur að segja frá því að nú eru vörurnar frá NAF fáanlegar á Íslandi.

Verið velkomin í vefverslunina >

Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives