Dýralæknar Katrin og Helga ehf er lítið og ungt fyrirtæki með háleit markmið og mikinn metnað. Fyrirtækið samanstendur af okkur tveimur, dýralæknunum Katrinu og Helgu Björtu, en að auki höfum við Bjarna og Guðbjörgu okkur til halds og trausts með yfirsýn yfir daglegan rekstur og bókhald.
Við störfum á Suðurlandinu og bjóðum alhliða dýralæknaþjónustu fyrir hross, kýr, sauðfé og smádýr. Þar að auki veitum við sérhæfðari þjónustu, en frekari útlistun á okkar þjónustu er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Með endur og viðbótarmenntun höldum við okkur vel upplýstum og metnaðarfullum. Við höfum sótt hin ýmsu námskeið, og árið 2024 bætti Helga Björt svo við sig kírópraktorsnáminu, en hnykkingar á hestum og hundum er þjónusta sem við bjóðum nú upp á.
Með góðu sambandi við viðskiptavini okkar leggjum við mikið upp úr persónulegri og faglegri þjónustu. Við erum á vel útbúnum bílum og búum yfir góðum tækjabúnaði, þ.á.m. sónar- og röntgentæki, til að við getum veitt bestu mögulegu þjónustu.
Katrin er fædd og uppalin í Linz, í fallega Austurríki. Þó hún væri borgarbarn laðaðist hún að sveitinni frá unga aldri og hefur verið mikill dýravinur frá því hún man eftir sér.
Katrin fylgdi ástríðu sinni fyrir dýrum og velferð þeirra og hóf nám við Dýralæknaháskólann í Vín í Austurríki. Þaðan útskrifaðist hún árið 2019 með áherslu á stórgripi.
Katrin kom fyrst til Íslands sem ferðamaður til að ferðast um landið og síðar sem námsmaður til að kynnast íslenska hestinum í sínu heimalandi. Eftir að hafa unnið í þrjú ár sem praktiserandi dýralæknir á dýralæknastofu á Suðurlandinu, stofnaði Katrin sitt eigið dýralæknafyrirtæki árið 2022, sem í dag heitir Dýralæknar Katrin og Helga ehf.
Email: katrin@khvets.is
Sími: +354 791-0667
Helga Björt er fædd og uppalin í Reykjavík. Frá barnsaldri ólst hún upp í kringum hross með foreldrum sínum og fjölskyldu, og reið út og ferðaðist á hestum með fjölskyldu sinni og vinum.
Eftir að hafa klárað tamningapróf frá Háskólanum á Hólum 2011, flutti Helga Björt til Noregs þar sem hún stundaði nám við Dýralæknaháskólann í Ósló, og útskrifaðist þaðan rétt fyrir jól 2017. Síðan 2018 hefur Helga Björt starfað sem praktíserandi dýralæknir á Suðurlandinu, og frá 2023 sem meðeigandi í Dýralæknar Katrin og Helga ehf., með vini sínum og starfsfélaga Katrinu Wagner.
Loks lauk Helga Björt kírópraktorsnámi fyrir hross og hunda í frá International Academy of Veterinary Chiropractic í Þýskalandi í mars 2024.
Email: helga@khvets.is
Sími: +354 783-0667
Bjarni er fæddur og uppalinn í Reykjavík þar sem hann hefur búið alla sína tíð. Í gegnum árin hefur Bjarni sinnt ýmiss konar stjórnunarstöðum og hefur því margþætta reynslu af fjölbreyttum rekstri. Bjarni hefur stundað hestamennsku með fjölskyldunni í gegnum tíðina og tók m.a. dómararéttindin í hestaíþróttum sem hann nýtti í nokkur ár. Sem fjölskyldumeðlimur er Bjarni okkur til halds og ráðgjafar í okkar rekstri.
Email: bokhald@khvets.is
Guðbjörg er fædd og uppalin í Mosfellsbænum en býr nú á Hellu. Frá því hún var barn hefur alltaf verið gæludýr á heimilinu, ýmist hundar, kisur, fuglar eða fiskar. Guðbjörg á nú hundinn Mosa sem er Standard Poodle úr ræktun Eyjabóls sem Helga Björt á. Guðbjörg lauk námi frá NTV sem bókari vorið 2017 og hlaut starfsréttindi sem Viðurkenndur bókari haustið 2017.
Email: bokhald@khvets.is
Við bjóðum upp á verknám fyrir dýralæknanema þar sem nemar fá tækifæri til að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem daglegt starf dýralæknis í blönduðum praksis hefur upp á að bjóða.
Athugið að við getum því miður ekki boðið upp á húsnæði á meðan á verknáminu stendur. Hins vegar erum við fús til að aðstoða við leit að hentugri gistingu í nágrenninu.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í verknámi hjá okkur, hafðu þá samband til að fá frekari upplýsingar.
Hér finnið þið nánari útlistun á okkar þjónustu. Hér eru tekin fram helstu atriði en listinn er ekki tæmandi. Velkomið að hafa samband ef þið þurfið frekari upplýsingar.
Almennur opnunartími er mánudaga til föstudaga milli 9 og 17. Til að bóka tíma biðjum við ykkur góðfúslega um að hringja á dagvinnutíma í síma 791-0667/783-0667.
Utan venjulegs opnunartíma bendum við á opinbera vakt dýralækna á Suðurlandi á vefsíðu Mast, sem birtir hvaða dýralæknir er á bakvakt á hverjum tíma. Mast neyðarþjónusta -
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives