Sæðingar & Frysting

Myndin hér að ofan var tekin vorið 2024 í Skálakoti þegar Tullis Matson og Kate Ashmore heimsóttu okkur til að fara yfir verkferla frystingarinnar og aðstoða okkur við að koma verkefninu af stað.

Á myndinni eru frá vinstri: Tullis Matson, Kate Ashmore, stóðhesturinn Skýr frá Skálakoti, Guðmundur Jón Viðarsson, Katrin Wagner og Helga Björt Bjarnadóttir.

Upphafið

Við höfum alltaf verið áhugasamar um að auka þekkingu okkar og reynslu. Með það að markmiði fór Helga Björt á námskeið í Bretlandi þar sem hún lærði um sæðistöku á stóðhestum, greiningu sæðis, meðhöndlun þess sem og sæðingu á hryssum. Í framhaldi af því tókum við að okkur sæðingar á hryssum á sæðingastöð þar sem yfir 100 merar voru sæddar með fersku sæði, auk þess sem við sendum kælt sæði til annarra sæðingastöðva á landinu.

Þetta ferli hefur verið okkur bæði dýrmæt reynsla sem og mikilvægur áfangi sem hefur opnað nýjar víddir fyrir okkar fyrirtæki.

Þróun sæðingastöðvar til frystingar

Árið 2024 hófum við samstarfsverkefni með Guðmundi Jóni Viðarssyni, eiganda stóðhestsins Skýr frá Skálakoti, um frystingu sæðis úr íslenskum stóðhestum til notkunar bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi. Með leiðsögn frá Tullis Matson leiðbeinanda okkar frá Englandi, höfum við, ásamt Guðmundi, unnið hörðum höndum að uppbyggingu fyrstu sæðingastöðvarinnar á Íslandi sem á að sjá um frystingu, geymslu. dreifingu og útflutning á frystu sæði úr íslenska hestinum.

Í kringum síðustu aldamót voru nokkrir dýralæknar sem settu af stað tilraunastarf í samstarfi með Hrossaræktarsamtökum Suðurlands um frystingu sæðis úr nokkrum stóðhestum hér á landi. Úr því urðu til a.m.k. 2 folöld, en þessu starfi var ekki haldið til streitu og hefur ekki verið fryst hestasæði á Íslandi síðan. Eins og stendur erum við einu dýralæknarnir á Íslandi sem bjóða upp á frystingu hestasæðis og erum við stoltar að vera í fyrrnefndu samstarfi í framlínu þessarar þróunar.

Til viðbótar við að frysta sæði úr lifandi stóðhestum bjóðum við einnig upp á að frysta sáðfrumur úr eistum hesta sem einhverra hluta vegna hafa verið felldir vegna sjúkdóms eða slyss. Þessi aðferð gerir ræktendum kleift að varðveita genamengi þessara hesta og viðhalda arfleifð þeirra víðar.

Dýralæknum er velkomið að hafa samband við okkur ef spurningar vakna varðandi þessa þjónustu og/eða hvernig best sé að fjarlægja eistu viðkomandi fallins hests til að varðveita gæði og heilbrigði sáðfrumnanna.

Hvað framtíðin ber í skauti sér

Bygging sæðingastöðvarinnar, til frystingar, geymslu og dreifingar sæðis úr íslenska hestinum, eru tímamót í íslenskri hrossarækt. Stöðin býður upp á fjölmarga möguleika fyrir íslenska hrossaræktendur, eins og t.d. að geta geymt og varðveitt erfðaefni úr stóðhesti sínum áður en aldur fer að segja til sín, og geta þá notað hann til ræktunar til fleiri ára. Einnig er þá hægt að varðveita erfðaefni úr stóðhestum sem ætlað er að flytja úr landi sem og hestum sem einhverra hluta vegna þarf að fella. Stöðin mun einnig gefa erlendum hrossaræktendum íslenska hestsins möguleika á að nota erfðaefni úr stóðhestum sem eru staðsettir á Íslandi.

Með þessu frumkvöðlastarfi sem Guðmundur í Skálakoti hóf, er markmiðið að leggja okkar af mörkum til að varðveita íslenska hestastofninn og gefa bæði íslenskum og erlendum hrossaræktendum fleiri valkosti.

Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives