Vitamin E & Selenium Plus - 1kg

Vitamin E & Selenium Plus frá NAF er fóðurbætir á duftformi ætlaður hrossum. Fóðurbætirinn inniheldur einungis náttúrulegt form af vítamíni E, sem hefur mestu líffræðilegu virknina, auk þess að innihalda lífrænt selen, en hvoru tveggja eru mikilvæg andoxunarefni. Þar að auki inniheldur blandan lýsín sem er mikilvæg amínósýra fyrir uppbyggingu vöðvavefs. Saman stuðlar þessi blanda að almennu heilbrigði hestsins sem og heilbrigðri vöðva- og taugastarfsemi. Vitamin E & Selenium Plus fóðurbætirinn gagnast einnig ræktunarhrossum og hrossum þar sem seleninnihald heys eða jarðvegs er lágt.

Notkunarleiðbeiningar

Byrjunar “hleðslu”skammtur: 30g (2 mæliskeiðar) 1x á dag. Viðhaldsskammtur: 15 g (1 mæliskeið) 1x á dag.

Frekari upplýsingar um vöruna >

8.890ISK

Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives