Sand Gard Pellets frá NAF er fóðurbætir á formi köggla ætlaður hrossum. Sand Gard er ætlað hrossum sem eiga á hættu að fá uppsafnaðan sand í þarma, t.d. hross sem eru á niðurétnu beitilandi eða í sandgerðum. Sand Gard hjálpar til við að losa hrossið við sandinn t.d. með því að viðhalda heilbrigðum þarmahreyfingum auk þess að draga sandkornin út með sér. Sand Gard inniheldur einnig góðgerla (probiotica) til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
Gefið 90 g (2 skeiðar) yfir fóður 1x á dag í 7 daga. Ef um ítrekað át af sandi er um að ræða er ráðlagt að gefa Sand Gard í 7 daga í röð 1x í mánuði.
Geymist á þurrum og köldum stað. Setjið lok á eftir hverja notkun. Geymist í allt að 36 mánuði frá framleiðsludegi.
Frekari upplýsingar um vöruna >
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives