Ovucycle frá NAF er fóðurbætir á formi köggla ætlaður til að styðja við frjósemi hryssna. Ovucycle er hannað m.a. til að stuðla að góðri virkni eggjastokkanna, heilbrigðum vexti eggsins, ásamt því að ýta undir endurnýjun legslímhúðar. Mælt er með að byrja að gefa Ovucycle að lágmarki 8-12 vikum áður en byrja á að halda hryssunni.
Hross >400 kg: gefið 66 g (2 mæliskeiðar) 1x á dag. Hross <400 kg: gefið 33 g(1 mæliskeið) 1x á dag. Ein mæliskeið gefur 33g.
Fóðurbætirinn geymist í allt að 30 mánuði eftir framleiðsludag. Geymist á köldum og þurrum stað. Setja skal lokið aftur á eftir notkun.
Frekari upplýsingar um vöruna >
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives