Five star Magic Liquid frá NAF er fóðurbætir á vökvaformi sem er hannaður fyrir hross bæði til að hafa róandi áhrif á þau en einnig til að auka einbeitingu þeirra og þannig hæfileika þeirra til að læra. Magic Liquid inniheldur sérvaldar náttúrulegar jurtir í samblandi við magnesíum sem hefur margþætta eiginleika, en fyrst og fremst er það mikilvægt fyrir heilbrigt taugakerfi og vöðvastarfsemi. Við hönnun Five Star Magic liquid vörunnar frá NAF var gerð lyfleysu (placebo) þversniðsrannsókn þar sem könnuð voru áhrif vörunnar á bæði stress og einbeitingu hrossa. Rannsóknin sýndi áberandi mun á milli þeirra sem fengu Magic Liquid og þeirra sem fengu "lyfleysuna", aukinni einbeitingu og minna stress, án þess þó að hafa slævandi áhrif. Rannsóknin var birt í ritrýndu blaði og vann svo árið 2019 til "Beta Innovation Award". Hér fyrir neðan er linkur að myndskeiði sem sýnir hugsunina á bakvið vöruna. NAF Magic Liquid fylgir reglum FEI um magnesíum og er því öruggt að nota fyrir öll hross.
Gefið Magic Liquid til að fá rólegra og einbeittara hross.
Byrjunar "hleðslu" skammtur (gefið í 7-10 daga) = 50ml 1x á dag yfir fóður (2 skömmtunarskeiðar).
Viðhaldsskammtur (að staðaldri) = 25ml 1x á dag yfir fóður (1 skömmtunarskeið).
Frekari upplýsingar um vöruna >
Legal notice | All Right Reserved | Copyright 2025 | Website build by kaya creatives